Velkomin á Iðnaðarsafnið - safn fyrir alla fjölskylduna

Iðnaðarsafnið á Akureyri geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr “gömlu verksmiðjunum” sem notaðar voru til framleiðslu á vörum, þar á meðal Saxbauta, Santos kaffi og Flóru smjörlíki, auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings. Á efri hæð safnsins er sýning á hinni víðtæku fata- og skóframleiðslu sem fram fór á Akureyri á liðinni öld. Hver man ekki eftir náttkjólunum frá Íris, Duffys gallabuxum, Skinnu mokkajökkum og Iðunnar skóm?

 

Almennir opnunartímar:

Sumaropnun: 1. júní til 14. september - alla daga 10-17

Vetraropnun: 15. september til 31. maí - laugardaga 14-16

 

Skoðaðu Iðnaðarsafnið á Akureyri – safn fyrir alla fjölskylduna!

 

Nýjustu fréttir

  • Glæsileg gjöf

    Skáparnir koma að góðum notum
    Nýlega færði Securitas Iðnaðarsafninu að gjöf þrjá glerskápa framleidda af Sýrusson Hönnunarhúsi. Skáparnir munu nýtast safninu einkar vel og eru þegar komnir í notkun. Ekki skemmir að þeir eru Íslensk hönnun og því kærkomin viðbót við húsgagnadeild safnsins.
     
    Takk kærlega fyrir okkur.


  • Gleðileg jól


     
    Iðnaðarsafnið á Akureyri óskar velunnurum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsælds komandi árs.

    Við vonum  að við sjáum ykkur á safninu á nýju ári.

  • Jólakaffi og piparkökur


    Iðnaðarsafnið á Akureyri býður jólakaffi og piparkökur laugardaginn 3. desember klukkan 14 til 16. Komdu og eigðu skemmtilega stund. Hægt verður að skoða myndaalbúm frá starfsárum Sambandsverksmiðjanna.

    Iðnaðarsafnið verður lokað í desember.

    Opnum aftur 7. janúar.

    Opnað verður fyrir hópa sé þess óskað 


  • Starfslok

    Nú um mánaðarmótin lætur Arndís Bergsdóttir af störfum sem safnstjóri Iðnaðarsafnsins. Ástæða uppsagnarinnar er erfið fjárhagsstaða safnsins, en unnið er að endurskipulagning rekstrar þess. Arndísi eru þökkuð góð störf í þágu safnsins og harmar stjórnin að hafa þurft að grípa til uppsagnar.

    Lesa meira

  • Ömmudagar á Iðnaðarsafninu

    ÖMMUDAGAR

    á Iðnaðarsafninu

    25. til 28. ágúst 

    Komdu með ömmu á safnið og biddu hana að segja þér frá

     Ömmur eru hafsjór af fróðleik og skemmtilegum sögum og flestar ömmur þekkja betur en aðrir þá gripi sem er að finna á Iðnaðarsafninu. Allir krakkar eru því hvattir til að koma með ömmu sinni í fræðslu- og skemmtiferð á safnið 25. til 28. ágúst. Amma borgar engan aðgangseyri. Afar eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir líka enda ekki minni fróðleik að finna þar. Iðnaðarsafnið á Akureyri- fyrir alla fjölskyldunaopið alla daga frá 10-17(enginn aðgangseyrir fyrir börn yngri en 16 ára)

Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

upp_til_selja.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning