Fréttir

Ævi í ull

Einstakt tækifæri til að kynnast ullarvinnslu og -framleiðslu á öldinni sem leið.

Kristinn Arnþórsson, ullarfræðingur, flytur fyrirlestur um ull og ullarframleiðslu á öldinni sem leið á Amtsbókasafninu, laugardaginn 9. janúar klukkan 14:00. 

Um leið verður opnuð á Amtsbókasafninu sýning Iðnaðarsafnsins um ull og ullarframleiðslu á síðustu öld. Sýningin verður opin til 31. janúar. 

Ævi Kristins er ofin í ull allt frá því hann lék sér við verksmiðjulækinn sem barn þar til hann lét af störfum sem ullarfræðingur. Eftir nám í Englandi hóf Kristinn störf við Gefjun þar sem hann hafði m.a. með höndum að blanda saman ullarhárum sauðkindanna til að búa til “sauðalitina” í ullargarni sem enn er notað í dag. Ennfremur hönnun á mynstri værðarvoða og margt fleira sem lítur að vinnslu og hönnun á ullarvörum. M.a. á Kristinn stóran þátt í hönnun á þeim varningi sem seldur var í vöruskiptum við Rússland og taldi milljónir af ullarvörum.  

Fyrirlesturinn og sýningin eru á vegum Iðnaðarsafnsins á Akureyri með dyggum stuðningi Menningarráðs Eyþings.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

leikfelag_sis002.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning