Afadagar á Iðnaðarsafninu 25-28. júní
Almennt - miðvikudagur 24.jún.09 09:51 - Arndís Bergsdóttir - Lestrar 73
Á Iðnaðarsafninu hefur það alltaf verið sérstakt ánægjuefni að taka á móti eldra fólki og flestir hafa lifað þá tíma þegar að safnkostur Iðnaðarsafnsins var hluti af daglegu lífi og störfum. Einnig höfum við tekið eftir því hve mikla ánægju eldri borgarar þessa lands hafa af því að miðla af reynslu sinni og þekkingu til þeirra sem yngri eru.
Til þess að skapa umgjörð utan um þessi skemmtilegu og nauðsynlegu samskipti kynslóðanna og ýta undir að þekking og sögur berist mann fram af manni mun Iðnaðarsafnið á Akureyri efna til afadaga 25. til 28. júní. Þá eru allir krakkar hvattir til að koma með afa sínum í fræðslu og skemmtiferð á safnið en afar eru hafsjór af fróðleik og skemmtilegum sögum og flestir afar þekkja betur en margur annar þá gripi sem er að finna á Iðnaðarsafninu, sumir hafa jafnvel unnið á verksmiðjunum. Frítt verður á safnið fyrir afa.
Ömmur er að sjálfsögðu hjartanlega velkomnar líka enda ekki minni fróðleik að finna þar.
Iðnaðarsafnið á Akureyri geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum prjónavélum, ölgerðarvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr verksmiðjunum sem notaðar voru til framleiðslu á vörum auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings sem flestir þekkja.
Iðnaðarsafnið á Akureyri
- fyrir alla fjölskylduna
opið alla daga frá 13-17
(enginn aðgangseyrir fyrir börn yngri en 16 ára)
