Blásið í lúðra á Iðnaðarsafninu - þjóðhátíðardeginum þjófstartað 16. júní með Skólahljómsveit Austurbæjar
Almennt - þriðjudagur 16.jún.09 10:55 - Arndís Bergsdóttir - Lestrar 65
Þriðjudaginn 16. júní blæs Iðnaðarsafnið í lúðra og þjófstartar þjóðhátíðardeginum. Við bjóðum ykkur velkomin klukkan tvö en þá mun Skólahljómsveit Austurbæjar leika fyrir gesti í garðinum við hlið safnsins og inni verður boðið upp á kaffi, kleinur og Svala fyrir börnin.