Fréttir

City Bus Sightseeing - hringferð milli safna og markverðra staða.

Sú nýbreytni verður í sumar að strætisvagnaferðir verða á milli áhugaverðra staða á Akureyri og er hugmyndin að veita ferðamönnum nýja leið til að ferðast á milli safna og markverðra staða í bænum. Ferðirnar verða miðaðar við komur skemmtiferðaskipanna og munu vagnarnir keyra frá 09:00 - 13:00 þessa daga:

16., 17., 18., 19., 20., 23., 24., 25., 26., 29., 30. og 31. júlí

1., 2., 3., 4., 6., 7., 8., 9., 12., 13., 14., 15., 16., 17., 20. og 22. ágúst

Hafa ber í huga að einhverjar breytingar gætu orðið á áætlun vagnanna.

Hver hringur tekur um 45 mínútur en alls eru 12 viðkomustaðir í hringnum og þeir eru eftirfarandi:

1)        Höfnin (Oddeyrarbryggja) 
2)        Miðbær (strætóstoppistöðin við Nætursöluna)
3)        Upplýsingamiðstöð ferðamanna í  Hafnarstræti 82
4)        Minjasafnið á Akureyri
5)        Iðnaðarsafnið á Akureyri
6)        Flugsafn Íslands
7)        Kjarnaskógur
8)        Hamrar
9)        Lystigarðurinn á Akureyri (stoppað í Þórunnarstræti)
10)      Sundlaug Akureyrar (stoppað í Hrafnagilsstæti)
11)      Akureyrarkirkja (stoppað neðst í Eyrarlandsvegi)
12)      Glerárgil (stoppað við innkeyrsluna að Háskólanum)
13)      Glerártorg
14)      Hringnum lokað aftur við höfnina.

Verðið er 3 Evrur eða 500 krónur fyrir einn miða og frítt fyrir börn að 12 ára aldri.  Miðinn er stimplaður með dagsetningu og gildir allan daginn og því geta farþegar, sem dæmi, stigið út í miðbænum eftir að hafa tekið sér far frá höfninni með fyrsta vagninum, rölt gegnum miðbæinn inn að Iðnaðarsafni, með viðkomu á Minjasafninu, og farið aftur um borð með síðasta vagninum.

Ferðalangar fá í hendur kort af hringnum og upplýsingar um viðkomustaðina auk þess sem hægt er að fá afhentan Akureyrarbæklinginn, Norðurlandsbæklinginn og safnabæklinginn þegar stigið er um borð.  

Við vonum að sem flestir nýta sér þessa frábæru leið til að heimsækja söfnin á Akureyri og aðra viðkomustaði.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

leikfelag_sis002.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning