Fréttir

EYFIRSKI SAFNADAGURINN 2011

 DAGSKRÁ IÐNAÐARSAFNSINS

Enn á ný blásum við til Eyfirska safnadagsins hér á Iðnaðarsafninu.

Dagskrá safnsins er fjölbreytt og ber hæst að bæjarbúum gefst kostur á að segja sjálfir sögu iðnaðar á Akureyri með sýningunni....

Sýndu mér...

- hlutir, framleiddir á Akureyri, fyrir börn.

 

Iðnaðarsafnið á Akureyri býður íbúum bæjarins að taka þátt í að búa til sýningu um hvaðeina sem framleitt var á Akureyri fyrir börn á öldinni sem leið, t.d. barnafatnað, barnaskó, barnahúsgögn, barnaleikföng eða annað sem ætlað var börnum.

 

Ef þú átt slíkan hlut í fórum þínum, þá mátt þú gjarnan koma með hann á Iðnaðarsafnið á eyfirska safnadaginn 7. maí og lána hann á sýninguna. Hlutnum verður þegar stillt upp og þú ert með í ráðum. Gaman væri ef upplýsingar um gripinn eða lítil saga tengd honum getur fylgt með (má vera handskrifað eða úr tölvu). Hlutinn er hægt að sækja á Iðnaðarsafnið milli klukkan 10 og 17 dagana 3. til 10. júní.

 Sýningin verður einnig opin milli klukkan 14 og 16, dagana 14. og 21. maí  

Verið velkomin!

Iðnaðarsafnið

- fyrir alla fjölskylduna.

 

Neðri hæð: Sýndu mér... – sýning, sem sett er upp með þátttöku bæjarbúa, á hlutum, sem framleiddir voru á Akureyri, fyrir börn.

 

Efri hæð: Einu sinni var – sýning Iðnaðarsafnsins á barnavörum sem framleiddar voru  á Akureyri.

Myndlistarherbergi fyrir börnin.

EYFIRSKI SAFNADAGURINN

Hvorki færri né fleiri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 7. maí frá kl 11-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í fimmta sinn. Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefur upp á að bjóða. Safnadagurinn er að þessu sinni tileinkaður börnum. Söngvar, sýningar, leikir, listasmiðja, leikföng, dúkkur, dúkkulísur, flugvélar, fuglar, þorskhausar, hákarl, ratleikir, gamaldags bú er meðal þess sem gestir safnanna stórir og smáir heyra, upplifa, taka þátt og njóta á EYFIRSKA SAFNADAGINN.

 

Rútuferðir verða á söfnin við Eyjafjörð.  Safnarúta 1: fer frá Akureyri kl 10 með viðkomu byggðasafninu Hvoli á Dalvík, Náttúrgripasafni Ólafsfjarðar, Síldlarminjasafni Íslands og Þjóðlagasetri sr Bjarna Þorsteinssonar. Safnarúta 2: fer frá Akureyri kl 12:30 í Útgerðarminjasafnið á Grenivík og svo í Gamla bæinn Laufás. Áhugasömum er bent á vefsíðuna www.sofn.is þar sem finna má nánari upplýsingar um það sem um er að vera þennan dag og brottfararstað safnarútanna tveggja.

Söfn fyrir börn í Eyjafirði Eftirfarandi söfn verða opin frá 11-17. Enginn aðgangseyrir er á EYFIRSKA SAFNADAGINN: Amtsbókasafnið, Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Leikfangasýning Friðbjarnarhúsi Akureyri,  Listagilið : sýning í Gallerý Boxi,  Minjasafnið á Akureyri, Nonnahús, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Gamli bærinn Laufás, Holt – hús Öldu Halldórsdóttur í Hrísey,  Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey, Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit, Útgerðarminjasafnið á Grenivík og Þjóðlagasetrið  á Siglufirði. 

Eyfirski safnadagurinn er stryrktur af Menningarráði Eyþings og rúturferðirnar eru styrktar af Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð og Grýtubakkahreppi.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

upp_til_selja.jpg

Heimsóknir

Í dag: 2
Samtals: 527684

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning