Fréttir

Gripir mánaðarins - Jólakort Iðju

         jolakort  Jólakort frá árinu 1960

Gripur mánaðarins er Jólakort gefið út um 1960 og árunum þar í kring gaf Iðja félag verksmiðjufólks á Akureyri og nágrenni út jólakort sem trúnaðarmenn félagsins sáu um sölu á hver á sínum vinnustað. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum í Fnjóskadal sem var starfsmaður skóverksmiðjunar Iðunnar á árunum 1956-1964 með hléum, vegna heilsubrests hætti hún og fór til starfa hjá Degi  og sá um innheimtu auglýsinga ásamt dreifingu blaðsins í miðbænum og sitt hvað fleira sem til féll hjá blaðinu. Jórunn orti jólavísu sem er í kortinu.

                                       Kom heilög nótt með hörpuóm

                                       og  helgi fagurs siðar.

                                       Ó, kom með ljós og blæ og blóm

                                       og blessun dýpsta friðar. 

 

Með þessari fögru vísu skáldkonunnar óskar stjórn og starfsmenn Iðnaðarsafnsins velunnurum safnsins svo og landsmönnum öllum gleðilegar jóla árs og friðar.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

hekluhusid_i_byggingu_001.jpg

Heimsóknir

Í dag: 2
Samtals: 527684

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning