Gripir mánaðarins - Cream Soda
Almennt - föstudagur 13.ágú.10 13:50 - Þorsteinn E. Arnórsson - Lestrar 49
Skapta Hallgrímssyni blaðamanni Morgunblaðsins segir svo frá í þættinum
Úr bæjarlífinu á Akureyri 21. maí 2009
Hann var þreyttur og líklega þyrstur einn félagi minn eftir körfuboltatímann í gær þegar hann sagði.
"Ef ég gæti kallað fram eitthvað eitt frá æskuárunum, þá væri það Cream Soda" Fyrir þá sem ekki þekkja var það ( ótrúlega vondur ) gosdrykkur framleiddur í Sana á Akureyri fyrir býsna mörgum árum.
Stundum fór maður út í sjoppu, og bað um eina Cream Soda og sagðist ætla að kaupa innihaldið."sagði þessi sami vinur minn og lygndi aftur augunum. Að kaupa innihaldið þýddi að hann hugðist drekka úr flöskunni á staðnum. Þá þurfti ekki að eiga viðskipti aftur með því að selja glerið.