Gripir mánaðarins - Skór
Almennt - mánudagur 19.júl.10 11:58 - Þorsteinn E. Arnórsson - Lestrar 42
Skrafað um Skó hét grein sem birtist í Samvinnunni 1958 þar sem meðal annars var fjallað um stórfætta Árnesinga og smáfætta Þingeyinga. Athyglisvert þótti að mikill munur væri á fótstærð Íslendinga eftir landshlutum. Árnesingar keyptu stærst númer af skóm, en Norðmýlendingar og sérstaklega Þingeyingar keyptu lítil númer. Það var einnig talið af kunnáttumönnum að þeir sem búa á flatlendi hafi að jafnaði lengri og þynnri fót, en lægri rist og þeir sem búa í fjalllendi, hafi aftur á móti styttri fót og breiðari, en hærri rist. Borgarbúar hafi yfirleitt grannt fótlag.
Halldór Kiljan Laxnes orti eitt sinn 
"Ég ætla að tala við kónginn í Kína
og kanske við páfann í Róm.
Og hvort sem það verður til falls eða frægðar
þá fer ég á íslenskum skóm".