Íslenzkur fatnaður - sumarsýning Iðnaðarsafnsins
Almennt - laugardagur 6.jún.09 16:11 - Arndís Bergsdóttir - Lestrar 94
Sumarsýning Iðnaðarsafnsins, íslenzkur fatnaður, var opnuð laugardaginn 6. júní. Á sýningunni gefur að líta fatnað sem framleiddur var í verksmiðjunum sem voru á Akureyri auk þess á saumastofum í bænum. Duffys gallabuxur, Heklu úlpur, jakkaföt frá JMJ og Gefjun og náttkjólar frá Íris eru meðal þeirra klæða sem sýnd eru.
Sýningin verður opin alla daga í sumar frá klukkan 13-17.
Verið velkomin!