Fréttir

Metaðsókn á Iðnaðarsafnið 2. maí

skipasning_og_fsos_027_640Á fjórða hundrað gesta lagði leið sína á Iðnaðarsafnið á eyfirska safnadaginn þann 2. maí og er það þreföldun frá því á safnadaginn í fyrra.

Sýning á fánum verkalýðsfélaganna vakti mikla athygli sem og harmonikkuleikarar sem lögðu leið sína í safnið. Þorsteinn Arnórsson sagði sögur af munum á safninu, mönnum og málefnum og var ávalt fjöldi fólks sem fylgdi honum enda voru leiðsagnir hans bæði fræðandi og skemmtilegar.

skipasning_og_fsos_028_640Gestir skemmtu sér hið besta og gaman var að sjá mikið af fjölskyldufólki, oft þrjár kynslóðir. Afar og ömmur sögðu barnabörnum frá tækjum og tólum sem þau notuðu við vinnu hér áður og foreldrar rifjuðu upp sumrin sem þau unnu við verksmiðjurnar.

Starfsfólk Iðnaðarsafnsins þakkar gestum kærlega fyrir komuna.

Sjáumst fljótt aftur!



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

leikfelag_sis.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning