Ömmudagar á Iðnaðarsafninu
Almennt - miðvikudagur 24.ágú.11 11:04 - Þorsteinn E. Arnórsson - Lestrar 13
ÖMMUDAGAR
á Iðnaðarsafninu
25. til 28. ágúst
Komdu með ömmu á safnið og biddu hana að segja þér frá
Ömmur eru hafsjór af fróðleik og skemmtilegum sögum og flestar ömmur þekkja betur en aðrir þá gripi sem er að finna á Iðnaðarsafninu. Allir krakkar eru því hvattir til að koma með ömmu sinni í fræðslu- og skemmtiferð á safnið 25. til 28. ágúst. Amma borgar engan aðgangseyri. Afar eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir líka enda ekki minni fróðleik að finna þar. Iðnaðarsafnið á Akureyri- fyrir alla fjölskyldunaopið alla daga frá 10-17(enginn aðgangseyrir fyrir börn yngri en 16 ára)