Fréttir

Safngripur og saga mánaðarins - Gufuflautan

flautan_1_640Hugmyndin með safngrip og sögu mánaðarins er að draga fram, á mánaðar fresti, einn safngrip Iðnaðarsafnsins og hafa hann til sýnis á vefnum ásamt upplýsingum eða jafnvel skemmtilegri sögu sem honum tengist. Markmiðið með þessari örsýningu á vefnum er að leitast við að draga fram fleiri sjónarhorn og samhengi þeirra gripa sem eru í fórum safnsins. Ennfremur viljum við hvetja þá sem hafa upplýsingar eða sögur um grip mánaðarins að koma þeim á framfæri við safnið. Með táknrænum hætti verður því flautað til leiks en fyrsti gripurinn er gamla gufuflauta frá Gefjun.

Í reglum fyrir starfsfólk Klæðaverksmiðjunnar Gefjunar segir:

"Starfsfólki verksmiðjunnar ber, samkvæmt samningi verksmiðjunnar við Iðju, félag verksmiðjufólks, að gera sig ferðbúið af vinnustað í eigin tíma og vera tilbúið til vinnu, þegar hún á að hefjast. Samkvæmt þessu er starfsfólkinu stranglega bannað að gera sig ferðbúið af vinnustað fyrr en merki hefir verið gefið um að vinnu sé lokið. Svo og ber starfsfólkinu skylda til að vera reiðubúið til vinnu þegar tímamerki er gefið og vinna hefst." (reglur þessar eru til sýnis á Iðnaðarsafninu)

Merki það sem kveðið er á um í reglunum var gefið með gufuflautunni og var hljómur hennar bæjarbúum vel kunnur.

Það mun hafa verið 1929 eða 1930 sem Jóna Þór verksmiðjustjóri kom til Freysteins Sigurðssonar kyndara og sagði það ótækt hve mjög starfsfólkið kvartaði undan því að hann flautaði ekki á réttum tíma í og úr vinnu. Freysteinn svaraði því til að hann gerði sitt besta til að gefa merki með gufuflautunni á réttum tíma, en úrið sitt væri gamalt og gengi ekki nákvæmar en raun bæri vitni.

Nokkrum dögum síðar kemur Jónas Þór verksmiðjustjóri með nýtt úr til Freysteins svo hann geti flautað með gufuflautunni á réttum tíma. Verð úrsins var, hinsvegar, dregið af launum Freysteins á nokkru mánuðum og gekk hann með það upp á vasann löngu eftir að það hætti að ganga.

Því er við að bæta að úrið var sett í kistuna hjá honum að hans ósk þegar hann lést.

Gufuflautan er til sýnis í fremri salnum á efri hæð safnsins.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

leikfelag_sis002.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning