Fréttir

Skelltu þér í ævintýraferð aftur í tímann - Eyfirski safnadagurinn 2. maí

safnaruta.stafir_640Laugardaginn 2. maí ætti getir öll fjölskyldan lagt í ævintýraferð um Eyjafjörðinn og aftur í tímann! En þann dag er Eyfirski safnadagurinn. Að venju verður opið á öllum söfnum á Eyjafjarðarsvæðinu 11-17 og aðgangur ókeypis.

Margt verður hægt að skoða og upplifa, fróðlega hluti, forvitnilega, frumlega, fyndna, framandi, merkilega, gamla, gáfulega og umfram allt, skemmtilega.

Flugmódel, flíkur, siglingar, sögumenn, söngvar, síldarsmakk, skór, skemmtanir, skrínur, skoðunarferðir, verkalýður, viðundur, veitingar, vaðmál, gjörningar, gler, gull, krásir, kveðlingar, kaffi, myndir, múnderingar og rósaleppar, eru aðeins sýnishorn af því sem verður í boði þennan dag.

Rútur munu aka milli safnanna á Eyjafjarðarsvæðinu og frítt verður í ferjuna til Hríseyjar. Strætisvagnar munu ganga milli safnanna innan Akureyrar, nánari upplýsingar eru í auglýsingum og á plaggötum. Í einhverjum rútum verða sögumenn sem segja skemmtilegar sögur af fólki og stöðum.

Skelltu þér í ævintýraferð 2. maí!

Hér er stutt ágrip af dagskrá safnanna:

Akureyri  

Amtsbókasafnið: Leiðsögn kl. 13:45 & 15:45 um safnið. Frí leiga á tónlist og kvikmyndum. Amts-Café verður opið

Davíðshús: Opið hús á heimili Davíðs Stefánssonar 

Iðnaðarsafnið á Akureyri: Samstaða og styrkur. Sýning og leiðsögn með fróðleik og sögum, helguð verkalýðsfélögum í Eyjafirði

Flugsafn Íslands 10 ára: Sérsýning um flugmódel, listflug kl 13:15, 14:15, 15:15 og 16:15  Kaffi og kleinur í boði

Húni II: sögusigling með leiðsögumanni kl. 14:00  

Leikmunasafn Íslands – Laxdalshús: Krásir og kveðlingar, framandi réttir og þjóðlegur kveðskapur

 

Minjasafnið á Akureyri: Af plötuí pixla: Fróðleikur um hvernig nálgast má gamalt myndefni með nýrri tækni. Kl 11:30, 13:30 & 15:30

 

Nonnahús: Leiðsögn um bernskuheimili barnabókarithöfundarins Jóns Sveinssonar, Nonna.  

Sigurhæðir: Heitt á könnunni í húsi Matthíasar  

Eyjafjörður

Byggðasafnið Hvoll á Dalvík: Kynning á útgefnu efni safnsins þ.e. Handverksmenn í byggðalaginu og Skemmtanir og dægradvöl fyrr á tímum.  Kaffi og kleinur

 

Gamli bærinn Laufás: Skó-, rósaleppa- og ostagerð frá kl. 14:00 - 16:00. Félagar úr Laufáshópnum sýna. Gamla presthúsið: kaffi/kakó og pönnukökur til sölu  

 

Holt í Hrísey: Leiðsögn um húsið. Kaffi og með því 

Hús hákarla-Jörundar í Hrísey: Leiðsögn um sýninguna. Kaffi og með því

Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar: Leiðsögn um safnið 

Safnasafnið, Svalbarðsströnd: 12 nýjar sýningar, gjörningur, skoðunarferð um gestaíbúð, skapað úr safnkosti. Kl 13:00 afhjúpaður 5 metra hár járn- og viðarskúlptúr eftir Huglistar-hópinn

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði: Öll safnahúsin opin. Kaffi og síldarsmakk.  

Smámunasafn Sverris Hermannssonar: ,,Ekki henda“ -  námskeið í endursköpun á gömlum flíkum undir stjórn Höddu kl 14-16. Ný sýning: Gullin hennar Gunnu. Léttar veitingar 

Þjóðlagasetrið á Siglufirði: Íslensk þjóðlög í lifandi flutningi.        

   

 



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

ketilhusid_rifid.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning