Starfslok
Almennt - þriðjudagur 29.nóv.11 15:34 - Þorsteinn E. Arnórsson - Lestrar 16
Nú um mánaðarmótin lætur Arndís Bergsdóttir af störfum sem safnstjóri Iðnaðarsafnsins. Ástæða uppsagnarinnar er erfið fjárhagsstaða safnsins, en unnið er að endurskipulagning rekstrar þess. Arndísi eru þökkuð góð störf í þágu safnsins og harmar stjórnin að hafa þurft að grípa til uppsagnar.