Fréttir

Sumarsýning Iðnaðarsafnsins - Hönd í hönd

HÖND Í HÖND

- aldraðir, börn og safn 

Safn er ekki eingöngu vettvangur fræðslu og menntunar heldur eru þau einnig staður þar sem að safngripirnir eru uppspretta samræðna, samskipta og tengsla. Með það að leiðarljósi efndi Iðnaðarsafnið á Akureyri til verkefnisins Hönd í hönd, þar sem að börn og aldraðir kynntust og áttu í samræðum.

Sýning byggð á verkefninu verður opnuð, á Iðnaðarsafninu á Akureyri, föstudaginn 10. júní og mun standa í allt sumar. Verkefnið var unnið í samvinnu við sjötta bekk í Brekkuskóla og félagsstarf aldraðra í Víðilundi á Akureyri og var markmiðið, sem fyrr segir, að stofna til tengsla þar sem að safnið var brú á milli kynslóðanna en ekki síður að vekja endurminningar og fræða.  

Bæði börn og aldraðir heimsóttu safnið og í tvígang heimsóttu börnin hina öldnu vini sína í Víðilund. Þeir safngripir sem vöktu áhuga barnanna og minningar hjá hinum eldri voru notaðir sem upphaf í spjalli þeirra og var ánægjulegt að sjá hve gott samband myndaðist á milli kynslóðanna. Þeir sem eldri eru sögðu unga fólkinu sögur úr lífi sínu, kváðu vísur og svöruðu hinum ýmsu spurningum. 

Hönd í hönd er sýning þar sem saman koma aldraðir, börn og safn. Hún byggir á afrakstri verkefnisins, sem krakkarnir unnu í skólanum, en þar segja þau frá því sem þeim fannst áhugaverðast í samtölunum ásamt myndum af vinnsluferlinu, auk þess eru gripir Iðnaðarsafnsins notaðir í frásögninni. 

Sýningin er opin á opnunartíma Iðnaðarsafnsins á Akureyri, alla daga frá klukkan tíu til fimm.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

leikfelag_sis.jpg

Heimsóknir

Í dag: 2
Samtals: 527684

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning