Þér er boðið á eyfirska safnadaginn 2. maí
Á laugardag er lag að skoða fjölda safna við Eyjafjörð.
Dyr
safnanna standa opnar frá klukkan 11:00 til 17:00. Aðgangur er ókeypis og fjöldi skemmtilegra sýninga og viðburða verða í boði á hverjum stað.
Söfnin bjóða þér og fjölskyldu þinni að fara milli safnanna á Akureyri, hvort heldur sem er á eigin vegum eða í safnastrætó. Ferð með safnarútu eitt fram í Eyjafjörð og í Laufás. Ferð með safnarútu tvö til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar eða til Hríseyjar, einnig með safnarútu tvö, og Dalvíkur. Þau Saga Jónsdóttir og Þórarinn Hjartarson verða sögumenn um borð í rútunum og má búast hinum skemmtilegustu ökuferðum á milli staða. Þeim sem ætla til Siglufjarðar er bent á að taka með sér nesti (og nýja skó ef vill).
Þiggðu boð um skemmtilegan dag!
Smelltu á þennan hlekk til að fá dagskrá og upplýsingar um safnarútur og safnastrætó.
Góða skemmtun!