Fréttir

ULLIN Í ALGLEYMINGI

Gríðarlegur áhugi er á ull og  ullarvinnslu.

Á annað hundrað manns komu á fyrirlestur og sýningu um ull og ullarframleiðslu.

Á annað hundrað manns komu á fyrirlestur Kristins Arnþórssonar, ullarfræðings, í Amtsbókasafninu á Akureyri síðastliðinn laugardag, en fyrirlesturinn fjallaði um ull og ullarvinnslu. Á sama tíma var opnuð, í Amtsbókasafninu, sýning á vegum Iðnaðarsafnsins á Akureyri um ull og ullarframleiðslu á síðustu öld. 

Þessi góða aðsókn á fyrirlestur Kristins ber vott um þann mikla áhuga sem vaknað hefur á ullinni og þeim tækifærum sem hún býður upp á í framleiðslu. Eftir nám í Englandi hóf Kristinn störf við Gefjun þar sem hann hafði m.a. með höndum að blanda saman ullarhárum sauðkindanna til að búa til “sauðalitina” í ullargarni sem enn er notað í dag. Ennfremur hönnun á mynstri værðarvoða og margt fleira sem lítur að vinnslu og hönnun á ullarvörum. M.a. á Kristinn stóran þátt í hönnun á þeim varningi sem seldur var í vöruskiptum við Rússland og taldi milljónir af ullarvörum.  

Að sama skapi hefur Iðnaðarsafnið á Akureyri fundið fyrir vaxandi áhuga gesta á þeirri innlendu iðnframleiðslu sem var á Akureyri og safnið gerir skil með sýningum sínum. Má því leiða líkum að því að landinn leiti aftur til fortíðar nú í breyttu þjóðfélagsástandi og að íslenskt hráefni, íslensk framleiðsla og vinnsla ýmiskonar veki meiri áhuga og sé litin öðrum augum en fyrri ár. 

Fyrirlesturinn og sýningin eru á vegum Iðnaðarsafnsins á Akureyri með dyggum stuðningi Menningarráðs Eyþings.



Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

ketilhusid_rifid.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 527162

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning