Markmið Iðnaðarsafnsins er að safna, skrá, varðveita, rannsaka og sýna minjar sem tengjast iðnaði, iðnframleiðslu á Akureyri (og eftir atvikum nágrenni) á 20. g 21. öld. Markmiðum um söfnun skal safnið ná með því að safna heimildum, (þ.e.munnlegum heimildum og ritheimildum) munum, myndefni, og öðru sem tengist sögu iðnaðar á Akureyri og sjá til þess að skrá þær og varðveita, annað hvort sjálft eða með sérstökum samningum við önnur söfn og varðveislustofnanir. Markmiðum um rannsóknir skal safnið ná með markvissri söfnun og úrvinnslu heimilda og rannsókna á safnkosti og sögu iðnaðar á Akureyri. Safnið skal kynna niðurstöður rannsókna sinna fyrir almenningi með sýningum, viðburðum og útgáfum. Í allri miðlun safnsins verður leitast við að draga upp skýra og áhugaverða mynd af iðnsögu Akureyrar.
Flýtilyklar
Markmið
Framsetning efnis
Leit
Heimsóknir
Í dag: 1
Samtals: 524631
Samtals: 524631