Fiskur úr sjó. Útgerðarfélag Akureyringa í 80 ár.
22.10.2026
Það er óhætt að segja að mikilvægi Útgerðarfélags Akureyringa hafi verið mikið í atvinnumálum. Starfsemin stóð oft höllum fæti framan af en fyrirtækið hélt sér á floti uns það náði góðri siglingu.
Sýningin er tvískipt. Annars vegar er ljósmyndasýning í forsal á neðri hæð en í matvælahluta safnsins hefur verið sett upp sýning á sjávarútvegi sem byggir á sögu ÚA.

