Góð heimsókn á safnið í morgun.

Góðir gestir.
 
Í morgun, mánudag 17. október fengum góða gesti í heimsókn til okkar á Iðnaðarsafnið.
 
Um 20 miðstigs nemendur úr Síðuskóla ásamt kennurum komu og voru að kynna sér iðnaðarsögu Akureyrar.
Af henni er meir en nóg hjá okkur.
 
Þetta var glaðvær og skemmtilegur hópur.
 
Og svo fengu krakkarnir  að gæða sér á nestinu sínu við Valbjarkarborðin okkar á eftir.