Glæsilegar myndir frá liðinni tíð.

Dýrmætar myndir.
Nú í morgunsárið barst Iðnaðarsafninu nokkuð magn af gömlum ljósmyndum sem teknar voru um borð í Snæfellinu EA 740 og hér má segja að menn hafi verið að fáan.
 
Jakob Tryggvason einn mesti og besti hollvinur Iðnaðarsafnsins er búin að skanna þær fyrir okkur yfir í stafrænt form og því eru þær orðnar aðgengilegar.
 
Þarna er sú gamla drottningin barmafull af síld og verið að gefa og háfa yfir í Björgvin EA 311 frá Dalvík.
Glæsilegar myndir sem segja mjög merkilega sögu sem var.
 
Þessar myndir ásamt fleirum frá Snæfellsárunum verða látnar rúlla á skjám Iðnaðarsafnsins í dag og næstu daga.