Samið um smíði líkans af Húna ll.

Frétt af akureyri.net.
 
Líkan afhjúpað á 60 ára afmæli Húna II
 
Samið hefur verið við Elvar Þór Antonsson á Dalvík um að smíða líkan af Húna II. Líkanið verður tilbúið fyrir mitt næsta ár og verður afhjúpað 22. júní, þegar 60 ára verða síðan Húni snerti hafflötinn fyrsta sinni framan við Skipasmíðastöð KEA á Oddeyri.
 
Húni ll er eini báturinn sem enn er til óbreyttur af þessari gerð á Íslandi og því sannarlega verðugt verkefni að eiga líkan af honum, sagði Sigfús Ólafur Helgason, safnstjóri Iðnaðarsafnsins á Akureyri, þegar hann skrifaði undir samning við Elvar Þór í dag fyrir hönd safnsins.
 
„Verndun Húna á sínum tíma var mikil menningar-björgunaraðgerð sem margir komu að, fyrst ber að nefna hjónin Þorvald Skaftason og Ernu Sigurbjörnsdóttur sem segja má að hafi varðað veginn og svo eftir að Húni kom hingað í bæinn hafi einstaklingar, félög sem og Akureyrarbær tekið við kyndlinum og allar götur síðan að skipið kom til Akureyrar hafi það fengið ótrúlega ástúð og væntumþykju hjá Hollvinum Húna og það er alveg dásamlegt að vita að svona félagskapur sem Hollvinir eru, skuli vera til. Ég segi hiklaust að þótt við séum að heiðra minningu þeirra manna er vörðuðu veginn í skipasmíðum hér á Akureyri fyrrum, er þessi framkvæmd sem við nú skrifum undir í dag ekki síður þakklætisvottur til Hollvina Húna fyrir elskuna sem þeir hafa sýnt skipinu alla tíð. Þær þakkir eiga þeir svo sannarlega skilið,“ sagði Sigfús Ólafur í ávarpi í tilefni dagsins.
 
„Til að þetta geti gerst hafa nokkrir aðilar, fyrirtæki, félög og einstaklingar lagt fjármagn til þessa verkefnis og það ber svo sannarlega að þakka, án þessa stuðnings værum við ekki í þessum sporum hér í dag,“ sagði Sigfús Ólafur. Hann vakti athygli á því að söfnunin fyrir líkaninu er enn í gangi. „Margt smátt verður að líkaninu,“ sagði safnstjórinn.
 
Svo skemmtilega vill til að hurð sem upphaflega var bakborðsmegin í stýrishúsi Húna II hefur varðveist og var notuð sem skrifborð í dag þegar Sigfús Ólafur Helgason, safnstjóri Iðnaðarsafnsins, og Elvar Þór, skrifuðu undir samning um smíði líkansins. Hurðinni var komið fyrir framan við Watnehúsið steinsnar frá Iðnaðarsafninu á Krókeyri.
 
Ekki nóg með það heldur verður hurðin nýtt áfram því líkanið af Húna II mun hvíla á henni þegar það verður til sýnis. Hurðin varð fyrir skemmdum á sínum tíma og Þorsteinn Pétursson og félagar í Hollvinafélagi Húna létu smíða nýja hurð eftir að skipið kom til Akureyrar. Þeir voru svo forsjálir að varðveita þá gömlu, sem mun nú koma að góðum notum.