Velkomin á Iðnaðarsafnið - safn fyrir alla fjölskylduna

Iðnaðarsafnið á Akureyri geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr “gömlu verksmiðjunum” sem notaðar voru til framleiðslu á vörum, þar á meðal Saxbauta, Santos kaffi og Flóru smjörlíki, auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings. Á efri hæð safnsins er sýning á hinni víðtæku fata- og skóframleiðslu sem fram fór á Akureyri á liðinni öld. Hver man ekki eftir náttkjólunum frá Íris, Duffys gallabuxum, Skinnu mokkajökkum og Iðunnar skóm?

 

Opnunartímar:

Sumaropnun: 1. júní til 14. september - alla daga 10-17

Vetraropnun: 15. september til 31. maí - laugardaga 14-16

 

Skoðaðu Iðnaðarsafnið á Akureyri – safn fyrir alla fjölskylduna!

 

Nýjustu fréttir

  • Gripir mánaðarins - Cream Soda

     

    Skapta Hallgrímssyni blaðamanni Morgunblaðsins segir svo frá í þættinum
    Úr bæjarlífinu á Akureyri  21. maí 2009 

    Hann var þreyttur og líklega þyrstur einn félagi minn eftir körfuboltatímann í gær þegar hann sagði.sana_640"Ef  ég gæti kallað fram eitthvað eitt frá æskuárunum, þá væri það Cream Soda" Fyrir þá sem ekki þekkja var það ( ótrúlega vondur ) gosdrykkur framleiddur í Sana á Akureyri fyrir býsna mörgum árum.
    Stundum fór maður út í sjoppu, og bað um eina Cream Soda og sagðist ætla að kaupa innihaldið."sagði þessi sami vinur minn og lygndi aftur augunum. Að kaupa innihaldið þýddi að hann hugðist drekka úr flöskunni á staðnum. Þá þurfti ekki að eiga viðskipti aftur með því að selja glerið.


  • Vor Akureyri á Iðnaðarsafninu - Frítt á safnið í tilefni dagsins

    Sunnudaginn 1. ágúst

    12.00-13.00 Vor Akureyri í Iðnaðarsafninu

    Hádegistónleikar við Iðnaðarsafnið, pylsur og kók í bauk

    Frítt á Iðnaðarsafnið í tilefni dagsins


    Undanfarnar tvær Verslunarmannahelgar hefur hátíðin Ein með öllu við rifjað upp sitthvað skemmtilegt úr fortíðinni.

    Við höfum heilsast með orðnum "sæll vinur" og "sæl vinan" og ekki hikað við að halda því fram að þetta og hitt væri fannntalega fínnnt. Við höfum sett rauðkál á pylsurnar og drukkið Vallash og kók í bauk. Tónlistin á þessum hádegistónleikum er líka ekta akureyrsk og þessu ætlum við svo sannarlega að halda áfram í ár.


  • Gripir mánaðarins - Skór

     

    Skrafað um Skó hét grein sem birtist í Samvinnunni 1958 þar sem meðal annars var fjallað um stórfætta Árnesinga og smáfætta Þingeyinga. Athyglisvert þótti að mikill munur væri á fótstærð Íslendinga eftir landshlutum. Árnesingar keyptu stærst númer af skóm, en Norðmýlendingar og sérstaklega Þingeyingar keyptu lítil númer. Það var einnig talið af kunnáttumönnum að þeir sem búa á flatlendi hafi að jafnaði lengri og þynnri fót, en lægri rist og þeir sem búa í fjalllendi, hafi aftur á móti styttri fót og breiðari, en hærri rist. Borgarbúar hafi yfirleitt grannt fótlag.

    Halldór Kiljan Laxnes orti eitt sinn inaars_020_640

    "Ég ætla að tala við kónginn í Kína

    og kanske við páfann í Róm.

    Og hvort sem það verður til falls eða frægðar

    þá fer ég á íslenskum skóm".


  • MINNINGARBOX - sumarsýning Iðnaðarsafnsins opnar 11. júlí

    Verið öll velkomin á sumarsýningu Iðnaðarsafnsins - MINNINGARBOX. Á sýningunni eru dregnir fram gripir sem vekja áhuga og endurminningar um árin 1930 - 1980. Sól-sápa, Flóru smjörlíki, Valash, Bæjarabjúgu, mjólkurflöskurnar, Duffys gallabuxur og margt fleira.  

    Komið í fortíðarferðalag á Iðnaðarsafninu. Safn fyrir alla fjölskylduna. 

     


  • Íslenski safnadagurinn 11. júlí - frítt á Iðnaðarsafnið í tilefni dagsins

    minjasafnidsafnadagurinn2710_copy_640

Framsetning efnis

Mynd augnabliksins

gamla_budin_rifin.jpg

Heimsóknir

Í dag: 1
Samtals: 524631

Dagatal

« Ágúst 2010 »
SMÞMFFL
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031 

Könnun

Hefur þú heimsótt Iðnaðarsafnið?

Póstlistar


...
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning