Iðnaðarsafnið á Akureyri geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr “gömlu verksmiðjunum” sem notaðar voru til framleiðslu á vörum, þar á meðal Saxbauta, Santos kaffi og Flóru smjörlíki, auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings. Á efri hæð safnsins er sýning á hinni víðtæku fata- og skóframleiðslu sem fram fór á Akureyri á liðinni öld. Hver man ekki eftir náttkjólunum frá Íris, Duffys gallabuxum, Skinnu mokkajökkum og Iðunnar skóm?
Opnunartímar:
Sumaropnun: 1. júní til 14. september - alla daga 10-17
Vetraropnun: 15. september til 31. maí - laugardaga 14-16
Skoðaðu Iðnaðarsafnið á Akureyri – safn fyrir alla fjölskylduna!
"Ef ég gæti kallað fram eitthvað eitt frá æskuárunum, þá væri það Cream Soda" Fyrir þá sem ekki þekkja var það ( ótrúlega vondur ) gosdrykkur framleiddur í Sana á Akureyri fyrir býsna mörgum árum.